Skóla- og fjölskyldumiðstöð skapi öryggi og hlýju fyrir börn frá Palestínu

Skóli og frístund Velferð

Börn sem nutu þjónustu skóla- og fjölskyldumiðstöðvar vegna móttöku fólks frá Úkraínu
Sex börn sitja við borð og föndra

Komið verður á fót skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir börn á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri í kjölfar fjölskyldusameiningar fólks frá Palestínu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag og stefnt er að formlegri opnun mánudaginn 22.apríl. 

Í síðasta mánuði komu 35 börn frá Gaza í Palestínu til Reykjavíkur á grundvelli fjölskyldusameiningar og eru þau komin í þjónustu velferðarsviðs á forsendum samræmdrar móttöku flóttafólks. Í þessum hópi eru 15 börn á leikskólaaldri, 19 á grunnskólaaldri og eitt barn á framhaldsskólaaldri. Það liggur fyrir að það muni aukast í þessum hópi á næstu vikum. 

Mikilvægt þykir að koma á fót skóla- og fjölskyldumiðstöð sem gegni því hlutverki að vera skjól fyrir börnin við komuna til landsins og fyrstu vikurnar í íslensku samfélagi. Í miðstöðinni er gert ráð fyrir þátttöku foreldra og hugsanlega annarra ættingja, jafnvel systkina sem þegar eru búsett á Íslandi.  

Áhersla lögð á áfallamiðaða nálgun 

Um er að ræða tímabundið úrræði til að mæta náms- og félagslegum þörfum barnanna. Ljóst er að þessi börn koma úr ómannúðlegum aðstæðum og rannsóknir sýna að börn sem þurft hafa að upplifa stríð kljást við áfallastreitu. Því er mikilvægt að skapa griðastað þar sem börn og fjölskyldur þeirra upplifa öryggi, rútínu og hlýju. 

Kona talar við skjá og fólk situr við borð og fylgist með

Áfallamiðuð nálgun verður leiðarljós í starfinu með áherslu á náið og gott samstarf skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, velferðarsviðs, Rauða kross Íslands, Unicef og annarra sem koma að velferð og námi barna. Í miðstöðinni mun starfa fólk úr skóla- og frístundastarfi með þekkingu á eða bakgrunn frá Mið- Austurlöndum auk starfsfólks með góða íslenskukunnáttu. Góð reynsla skapaðist af verkefni sem þessu þegar tekið var á móti fólki frá Úkraínu fyrir tveimur árum síðan. Hugmyndin er að starfrækja miðstöðina til 30. júní næstkomandi og á hún að skapa blíða byrjun fyrir börnin inn í almennt skóla- og frístundastarf í Reykjavík.

Sótt um styrk frá ríkinu fyrir viðbótarfjármagni 

Skóla- og fjölskyldumiðstöðin verður opin virka daga frá kl. 8.30- 13.00 og verður áhersla lögð á eftirfarandi: 

  • Vettvang fyrir samveru fjölskyldna. 
  • Samfélagsfræðslu. 
  • Mat á náms- og félagslegri stöðu barna. 
  • Kynningu á leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfi, meðal annars með vettvangsheimsóknum. 
  • Latneska leturgerð. 
  • Grunnorðaforða í íslensku. 
  • Undirbúning fyrir leik- og grunnskólagöngu. 
  • Undirbúning fyrir foreldra í skólafærni. 

Verkefnið er fjármagnað að hluta úr ramma skóla- og frístundasviðs en þörf er á viðbótarfjármagni upp á 13,1 milljón króna og verður sótt um styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til að mæta þeim viðbótarkostnaði.