Skipulagsbreytingar vegna Borgarlínu kynntar í samráðsgátt stjórnvalda

Samgöngur Skipulagsmál

""

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt sameiginlega verk- og matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Kópavogs og Reykjavíkur fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Breytingarnar felst í að staðsetja legu fyrstu lotu Borgarlínu og svokallaðrar kjarnastöðvar milli Hamraborgar í Kópavogi og Ártúnshöfða í Reykjavík, ásamt fyrirhuguðum breytingum á Sæbraut og Miklubraut.

Þetta er í fyrsta skipti sem samráðsgátt stjórnvalda er notuð til að kynna skipulagsbreytingar á vegum sveitarfélaga en Borgarlínuverkefnið er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga og því liggur beint við að nýta gáttir beggja aðila í samráðsferlinu.

Verk- og matslýsingar verkefnisins verða í kynningu frá 7. apríl til og með 9. maí og verður hægt að nálgast þær á eftirfarandi slóðir: samradsgatt.islands.is; borgarlinan.is; kopavogur.is; reykjavik.is/skipulag-i-kynningu; adalskipulag.is.

Frestur til að athugasemda rennur út þann 9. maí 2020 og verða ábendingar og athugasemdir að vera skriflegar. Hægt verður að senda þær á samráðsgáttina, eða borgarlinan@borgarlinan.is, skipulag@reykjavik.is eða á skipulag@kopavogur.is Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem berast.