Skákmaraþonið, er haldið til minningar um Jóhönnu Kristjónsdóttur, rithöfund, blaðakonu og stofnanda Fatimusjóðsins. Safnað verður áheitum og framlögum fyrir Fatimusjóðinn og UNICEF.
Dagru B. Eggertsson, borgarstjóri setti skákmaraþon Hróksins formlega í morgun. Jóhanna Kristjónsdóttir, móðir Hrafns Jökulssonar, forseta Hróksins stofnaði Fatimusjóðinn, en hún lést 11. maí á síðasta ári og er maraþonið helgað minningu hennar. Safnað verður áheitum og framlögum fyrir Fatimusjóðinn og UNICEF og verður söfnunarfénu varið í þágu barna í Jemen. Samkvæmt upplýsingum UNICEF er staða barna í Jemen skelfileg. Margra ára átök hafa lagt landið í rúst. Í Jemen hefur hefur ríkt stríð um árabil og milljónir barna stríða við hungur, sjúkdóma og ólýsanlegar þjáningar. Á tíu mínútna fresti deyr barn í Jemen af orsökum sem hægt væri að fyrirbyggja. Meira en 11 milljónir barna í Jemen þurfa á lífsnauðsynlegri hjálp að halda.
Leiðarljós söfnunarinnar eru kjörorð Jóhönnu Kristjónsdóttur heitinnar : Til lífs og til gleði!
Skákmaraþonið fer fram dagana 11. og 12. maí frá kl. 09:00 til miðnættis báða dagana í Pakkhúsinu, Geirsgötu 11, 101 Reykjavík.
Þau sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á reikning Fatimusjóðsins:
Reikningsnúmer: 0512-04-250461
Kennitala: 680808-0580
Svo má senda SMS-ið JEMEN í 1900 og gefa 1900 krónur gegnum okkar góðu vini hjá UNICEF.