Samkeppni um ljóslistaverk á Vetrarhátíð 2025

Ljóslistaverk á Vetrarhátíð
Ljóslistaverk á Vetrarhátíð

Reykjavíkurborg og Veitur standa fyrir samkeppni um ljóslistaverk í almannarými borgarinnar á Vetrarhátíð 2025. Hátíðin fer fram dagana 6.–9. febrúar næstkomandi.

Vetrarhátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 2002 og hefur markmiðið með hátíðinni verið frá upphafi að lýsa upp skammdegið og bjóða íbúum og gestum borgarinnar að upplifa einstaka stemningu í borginni.

Opin keppni

Markmið samkeppninnar er að virkja íslenskt hugvit og nýsköpun sem styður við skapandi og lifandi borg.

Samkeppnin er opin öllum, myndlistar-, tónlistar og ljóstæknifólki, tölvunarfræðingum, ljóslistarhönnuðum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn, ljós og list í einhverju formi. Hægt er að koma með tillögu að staðsetningu eða fá ráðgjöf frá skipuleggjendum.  Kostur er ef verkið er gagnvirkt og/eða innsetning í almannarými borgarinnar. Horft er til frumleika og má nota ýmis konar efni til verksins. Hafa skal í huga að hátíðin fer fram utandyra að vetri til og er mikilvægt að tillagan taki mið af því. 

Tvö verk eru valin og hljóta styrk að upphæð 1.000.000 krónur hvert. Upphæðin er hugsuð bæði til framkvæmdar verksins svo og þóknunar listafólks.

Áherslur dómnefndar

Dómnefnd leggur eftirfarandi áherslur í mati sínu:

  • Styrkleiki heildarhugmyndar   
  • Listrænt gildi tillögu
  • Áhrif tillögu á almannarýmið
  • Praktísk hagnýting tillögu

Einnig verður horft til raunhæfni og kostnaðar við framkvæmd hugmyndar auk samsetningar teymis.

Tímarammi 

16. október 2024 // samkeppni kynnt og opnað fyrir umsóknir

1. desember 2024 // umsóknarfresti lokið.

1.–9. desember 2024 // vinna dómnefndar 

10. desember 2024 // niðurstaða kynnt

6.–9. febrúar 2025 // Vetrarhátíð í Reykjavík

Skilaform og afhending

Tillögur skulu innihalda eftirfarandi: 

  • Myndefni og greinagerð sem sýna og útskýra heildarhugmynd verksins og listrænt gildi tillögu
  • Kostnaðaráætlun vegna framkvæmdar og þóknunar sigurvegara

Tillögum skal skila á pdf-formi eða í rafrænni framsetningu í gegnum vefsíðuna WeTransfer á netfangið vetrarhatid@reykjavik.is fyrir miðnætti sunnudaginn 1. desember 2024.

Tillögur skulu merktar með sex tölustafa auðkennisnúmeri sem þátttakendur velja sjálfir. Með tillögunni skal einnig senda skjal/nafnamiða með sama auðkennisnúmeri sem inniheldur upplýsingar um þátttakendur ásamt nafni, netfangi og símanúmeri tengiliðar hópsins. Dómnefnd fær ekki þær upplýsingar. Tillögu er veitt viðtaka berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.

Þegar farið er inn á WeTransfer er hægt að velja Take me to Free eða Get WeTransfer Pro. Almennt er nóg að velja Take me to Free nema ef sendandi er með Pro aðgang.

  1. Hlaðið niður skjölunum, "+ Add your files".
  2. Setjið inn netfang móttakanda: Email to vetrarhatid@reykjavik.is
  3. Setjið inn netfang sendanda: Your email xxx@xxx.xx
  4. Ýtið á "Transfer".

Hægt er að senda fyrirspurnir á  vetrarhatid@reykjavik.is

Úrslit 

Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum 9. desember 2024. Þegar dómnefnd hefur formlega lokið störfum verður nafnleynd rofin og þátttakendum tilkynnt um niðurstöður dómnefndar. 

Dómnefnd:

  • Salóme Rósa Þorkelsdóttir, borgarhönnuður og verkefnastjóri hjá skrifstofu samgangna og borgarhönnunar á umhverfis- og skipulagssviði
  • Markús Þór Andrésson deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur
  • Sesselja Jónasardóttir, framkvæmdastjóri listahátíðarinnar List í ljósi

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hafa samband við keppendur sem ekki hljóta verðlaun um mögulegt samstarf. Ef dómnefnd telur enga innsenda tillögu koma til greina til nánari útfærslu áskilur hún sér rétt til að hafna öllum tillögum. Niðurstaða dómnefndar er endanleg.