Rekstur borgarinnar skilar 2,5 milljarða króna afgangi

Stjórnsýsla Fjármál

""

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 og fimm ára áætlun er lögð fram til fyrstu umræðu í borgarstjórn í dag.

 

  • Rekstrarniðurstaða samstæðu jákvæð um 13 milljarða.

  • Framlög aukin til velferðarmála og skólamála

  • Grænar fjárfestingar nema 4,6 milljörðum króna

  • Fjárfestingaráætlun borgarinnar 19,6 milljarðar

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 og fimm ára áætlun 2020-2024 var lagt fram í borgarstjórn í dag.  Áætlunin gerir ráð fyrir að borgarsjóður skili 2,5 milljarða jákvæðri rekstrarniðurstöðu árið 2020, en jákvæð niðurstaða samstæðu er áætluð um 13 milljarðar króna eftir fjármagnsliði.

„Að undanförnu hefur verið samdráttur í efnahagslífinu. Það krefst þess að við séum enn betur á varðbergi gagnvart efnahagsumhverfinu. Við mætum samdrætti með traustri fjármálastjórn, hóflegri hagræðingarkröfu og metnaðarfullri fjárfestingaráætlun borgarsjóðs og borgarfyrirtækja,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.  

Hann segir stór skref verða stigin við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og að ný verkefni á sviði velferðar verði áberandi eins og innleiðing NPA og nýtt stuðningsnet í þjónustu við börn og fjölskyldur.

„Þá erum við að fjármagna metnaðarfulla uppbyggingu íþróttamannvirkja, ekki síst í Breiðholti og Úlfarsárdal. Fjármögnun Borgarlínu hefur verið tryggð með samgöngusamningi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við ríkið. Laugavegur verður gerður að varanlegri göngugötu og Hlemm-torg verður endurgert á næstu árum. Ný jarð- og gasgerðarstöð tekur til starfa og söfnun lífræns úrgangs frá heimilum verður innleidd í áföngum og við förum í alþjóðlega skipulagssamkeppni um Samgöngumiðstöð Reykjavíkur við BSÍ. Grænar áherslur eru gegnumgangandi og loftslagsmál ávallt í forgrunni.“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Sterk afkoma samstæðunnar

Áætlunin gerir ráð fyrir góðri afkomu samstæðu Reykjavíkurborgar á næstu árum en henni tilheyra B-hluta fyrirtæki borgarinnar svo sem Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir, Félagsbústaðir og Malbikunarstöðin Höfði.

Framlegð samstæðunnar (EBITDA sem hlutfall af tekjum) er áætluð 21,9% árið 2020 en mun hækka í 24,1% í fimm ára áætlun.

Skuldaviðmið samstæðu Reykjavíkurborgar var árið 2018 um 73% miðað við gildandi reglur þar sem gert er ráð fyrir að skuldaviðmið samstæðu sveitarfélaga séu innan við 150%

Álagningarhlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði mun lækka í áföngum á seinni hluta tímabilsins.

Fjárfest fyrir um 20 milljarða króna

Fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun A-hluta Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir að 19,6 milljörðum króna verði varið til fjárfestinga. Þar af er ráðgert að verja 4,6 milljörðum króna til grænna fjárfestinga. Meðal stórra fjárfestinga sem ráðist verður í á næsta ári eru sundlaug og íþrótta- og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal, íþróttahöll og frjálsíþróttasvæði í Suður-Mjódd, endurgerð á Hlemmtorgi auk gatnagerðar í nýjum hverfum. Reykjavík er í örum vexti og eru ný íbúðahverfi að rísa í Vogabyggð, Hlíðarenda og við Leirtjörn í Úlfarsárdal. Þá verður stórauknu fjármagni veitt til skólaþróunar á grundvelli nýrrar menntastefnu auk þess sem aukin verkefni á sviði velferðar koma til framkvæmda, svo sem ný búsetuúrræði, innleiðing NPA og nýtt stuðningsnet í þjónustu við börn og fjölskyldur. Auknu fé verður veitt til viðhalds gatna og hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Grænar áherslur eru ríkjandi í fjárfestingaráformum borgarinnar og loftslagsmál í forgrunni í áætlunum hennar um Borgarlínu og uppbyggingu í nágrenni við legustæði hennar.

Húsnæðisuppbygging hefur aldrei verið umfangsmeiri í sögu borgarinnar. Nýir byggingarreitir og uppbyggingarsvæði sem njóta góðs af nálægð við Borgarlínu verða megináherslan í þróun borgarinnar á næstu árum. Ný íbúahverfi munu rísa í Gufunesi, Elliðaárvogi og Skerjafirði. Til að tryggja lýðræðislegt samtal eru ný íbúaráð tekin til starfa um alla borg í spennandi samvinnu við íbúa í hverfum borgarinnar. Unnið verður að framtíðarsýn og áætlun um sjálfbær hverfi í gegnum hverfisskipulag fyrir hvert hverfið af öðru. Árbæinn var fyrstur og Breiðholtið kemur næst. Í virku samráði við notendur og atvinnulíf verður einnig unnið að rafvæðingu og einföldun í þjónustu borgarinnar og endurhugsun og eflingu almenningsbókasafna. Menningarlíf borgarinnar hefur sjaldan verið öflugra og á næsta ári verða Evrópsku kvikmyndaverðlaunin afhent í Reykjavík.

Tekjur A-hluta eru áætlaðar 135.156 mkr. en gjöld með afskriftum 132.124.  

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2020 og fimm ára áætlun 2020 - 2024