Persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar

Stjórnsýsla

""

Persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur verið tilnefndur samkvæmt nýjum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.  Dagbjört Hákonardóttir, lögfræðingur á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, hefur tekið við starfi persónuverndarfulltrúa skv. 35. gr. laganna.

Einstaklingar sem óska upplýsinga um vinnslu persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg sem og leiðbeininga um hvernig þeir geta neytt réttar síns samkvæmt ákvæðum laganna, geta beint erindum sínum til Dagbjartar í gegnum netfangið personuverndarfulltrui@reykjavik.is eða í síma 411-1111.