Óvirk umferðarljós á Sæbraut í nótt

Samgöngur

""

Umferðarljós á gatnamótum Sæbrautar og Sundagarða verða óvirk í nótt, aðfaranótt föstudagsins 3. apríl, vegna viðgerða í dreifikerfi rafmagns.  Straumur verður tekinn af frá miðnætti til sjö um morguninn.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir. Varúðarskilti verða sett upp.

Á vef Veitna má sjá það svæði sem verður rafmagnslaust