Óvirk umferðarljós á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar
Samgöngur

Umferðarljósin á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar eru óvirk og verða óvirk í það minnsta eitthvað frameftir degi á morgun mánudag 6. febrúar.
Ástæðan er talin vera leki á heitu vatni í nágrenninu sem virðist hafa valdið skemmdum í stjórnkerfi umferðarljósanna.
Unnið hefur verið að viðgerðum frá því á laugardag og verður þeim haldið áfram snemma í fyrramálið.
Vegna þessa er lokað fyrir vinstribeygju í allar áttir á gatnamótunum að ósk lögreglu.
Uppfært klukkan 11.00 6. febrúar: Umferðarljósin eru komin í lag.
Uppfært klukkan 16.00 6. febrúar: Umferðarljósin eru aftur orðin óvirk og unnið er að viðgerðum.