Það var fallegt um að litast í Heiðmörk í hádeginu í dag þegar Einar Þorsteinsson borgarstjóri felldi Oslóartréð sem mun prýða Austurvöll yfir hátíðarnar.
Eftir að hafa fengið viðeigandi öryggisútbúnað hjá Skógræktinni til verksins naut borgarstjóri aðstoðar Sævars Hreiðarssonar skógarvarðar hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur við að saga tréð og fella það. Við mælingu reyndist það vera um 13 metra hátt sitkagrenitré sem er tæplega hálfrar aldar gamalt.
Oslóarborg gaf í áratugi Reykvíkingum jólatré sem tákn um vináttu borganna og sameiginlegar hefðir og jólagleði. Þótt Oslóartréð komi nú úr Heiðmörk hefur það engu breytt um vináttuna og í stað jólatrés gefa borgaryfirvöld í Osló grunnskólum í Reykjavík bækur. Að trjáfellingu lokinni var viðstöddum boðið upp á ketilkaffi og norskt konfekt að viðstöddum fulltrúum frá norska sendiráðinu og færeysku sendistofunni.
Viðstödd þáði ketilkaffi og konfekt við skála félags Norðmanna á Íslandi, í Heiðmörk.
Mikið lagt í skreytingar
Hanna í Horni, sendikvinna Færeyja á Íslandi, var einnig viðstödd athöfnina, en kveikt verður á jólatré sem er gjöf frá Reykjavíkurborg í Þórshöfn í Færeyjum þann 30. nóvember. Eimskip sér um að flytja tréð til Færeyja.
Borgarstjóri taldi árhringina á Oslóartrénu og reyndist tréð vera tæplega hálfrar aldar gamalt.
Oslóartréð verður sett upp á Austurvelli og mikið lagt í skreytingar að þessu sinni til að gleðja borgarbúa og aðra vegfarendur. Jólaljósin á trénu verða svo tendruð við hátíðlega athöfn á fyrsta sunnudegi í aðventu þann 1. desember klukkan 16.00.