Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að annast námskeið fyrir einstaklinga sem sækja endurhæfingarnámskeið á vegum sviðsins, þ.e. Karlasmiðju, Kvennasmiðju og Grettistak.
Um er að ræða kennslu þar sem þátttakendum er veittur markviss stuðningur til að undirbúa þá til að komast í frekara nám eða út í atvinnulífið.
Um er að ræða reglulegt samstarf við Velferðarsvið varðandi daglega umsýslu verkefnisins og þau álitamál er upp kunna að koma. Kennsla skal fara fram í formi fyrirlestra og verkefnavinnu, auk náms- og starfsráðgjafar. Kennsla, kennslugögn, húsnæði, umsýslukostnaður er innifalið í greiðslum til þjónustusala.
Námsefni, framsetning og framvinda náms er sniðin að þörfum og stöðu þátttakenda. Námsáætlun og stundaskrá skal unnin í nánu samráði við ábyrgðarmenn starfseminnar á Velferðarsviði.
Áhugasamir skili inn umsóknum ásamt kostnaðaráætlun á netfangið stefania.sorheller@reykjavik.is fyrir 30. maí 2014.