Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar heldur opinn fund Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag fimmtudaginn 6. desember kl. 15-17. Öll sem hafa áhuga á að kynna sér og ræða menntastefnu Reykjavíkur og framtíðarskólann eru velkomin.
Borgarstjórn hefur samþykkt Menntastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2030. Tilgangur stefnunnar er að ná víðtækri samstöðu um framtíðaráherslur í skóla- og frístundastarfi í borginni og forgangsraða mikilvægustu umbótaverkefnum. Markmið stefnunnar er að valdefla börn og ungmenni með því að styrkja grundvallar hæfniþætti sem skólasamfélagið í borginni hefur sett í forgang. En hverjar eru framtíðaráherslur í menntun barna og helstu forgangsverkefni?
Dagskrá opins fundar skóla- og frístundaráðs
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar fundinn en þvínæst flytur Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs ávarp um framtíðaráherslur og forgangsverkefni í nýrri menntastefnu.
Sjónarhorn foreldra og nemenda á menntastefnuna
-
Þórunn Steindórsdóttir, SAMFOK - Fulltrúi foreldra fjallar um þeirra sjónarhorn
-
Freyja Dögg Skjaldberg og Embla Nótt Pétursdóttir - Fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna fjalla um sjónarhorn nemenda
Framtíðarskólinn
Með nýrri menntastefnu til 2030 skapast möguleikar í skóla- og frístundastarfi, sem gætu haft áhrif á skólagerðir og áform um byggingar skóla í nýjum hverfum. Fer vel á því að hafa saman í einum skóla leikskóla, yngsta stig grunnskóla og frístundaheimili sem veita börnum heilsdags, heilsárs þjónustu? Er hægt að koma betur til móts við fjölbreyttar menntunar- og félagsþarfir 10-15 ára barna með því að hafa þennan aldurshóp í sérstöku skólahúsnæði?
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, ávarpar fundinn með ofangreindar spurningar í huga.
Þáttakendur í pallborði og umræðum í lok fundar
- Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs
- Valgerður Sigurðardóttir, fulltrúi í skóla- og frístundaráði
- Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
- Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands
- Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla
- Þrúður Hjelm, skólastjóri Krikaskóla í Mosfellsbæ