Opinn fundur - Hver er staða eldri innflytjenda?
Opinn fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar verður haldinn á morgun þriðjudaginn 10. apríl 2018, kl. 09.00 - 11.00 í Tjarnasal Ráðhúss Reykjavíkur. Streymt verður frá fundinum.
Umfjöllunarefni fundarins er Eldri innflytjendur - Hver er staða þeirra?
Dagskrá:
09.00 Setning
Guðrún Ágústsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkurborgar
09.10 Hver er staða eldri innflytjenda?
Barbara Jean Kristvinsson, sérfræðingur í málefnum innflytjenda
09.25 Að eldast í nýju landi - Að hverju þarf að huga í þjónustu við eldri innflytjendur og flóttafólk?
Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
09.40 Kaffihlé
09.50 Hver er mannauðurinn sem við verðum að sinna og hafa í okkar liði?
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður landsambands eldri borgara og fulltrúi öldungaráðs Reykjavíkurborgar
10.05 Reynsla innflytjanda, Igbale Cena
Erindið mun fara fram á serbnesku og túlkað yfir á íslensku
10.20 Reynsla innflytjanda, Andrzej Stodulski
Erindið mun fara fram á pólsku og túlkað yfir á íslensku
10.35 Fulltrúar í pallborði sitja fyrir svörum
Fundarstjóri er Guðrún Árnadóttir, ritari Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Fundurinn fer fram á íslensku