Nýtt neyðarskýli við Grandagarð

Velferð

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði í dag nýtt neyðarskýli við Grandagarð en skýlið er fyrir unga heimilislausa karla sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda.

Í neyðarskýlinu verður tekið á móti 15 einstaklingum og opnunartími er frá fimm síðdegis til tíu á morgnana alla daga ársins. Tveir til þrír starfsmenn verða á vakt í skýlinu hverju sinni.

Neyðarskýlið er þriðja sinnar tegundar á vegum Reykjavíkurborgar en fyrir eru gistiskýlið við Lindargötu og Konukot. Alls verður hægt að taka á móti 45 körlum og 12 konum í neyðarskýlum borgarinnar með tilkomu nýja skýlisins.  Gláma/Kím Arkitektar teiknuðu breytingar á húsinu en Kjölur byggingafélag og Guðmundur Pálsson sáu um framkvæmdir.

Með tilkomu neyðarskýlisins við Grandagarð hefur Reykjavíkurborg nú möguleika á að aðgreina hóp yngri og eldri karla sem stríða við heimilisleysi. ,,Við fögnum því að geta bætt þjónustu við unga heimilislausa vímuefnaneytendur,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Rannsóknir sýna að ungmenni sem stríða við heimilisleysi og glíma við alvarlegan vímuefnavanda eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi og því mikilvægt að aðgreina hópinn frá eldri neytendum. Rauði Krossinn hefur bent á fjölgun í aldurshópnum 18-20 sem stríða við heimilisleysi og alvarlegan vímuefnavanda. Þá er staðreynd að ungum mönnum sem neyta vímuefna um æð hefur fjölgað hlutfallslega í Gistiskýlinu við Lindargötu á undanförnum árum. 

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða mun sjá um rekstur neyðarskýlisins en miðstöðin annast umsjón með málaflokki heimilislausra á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Til að mæta þörfum yngri hópsins verður aldurstakmark á Granda miðað við 30 ára aldur.

Sérfræðingar frá Þjónustumiðstöðinni verða ráðgefandi við stjórnendur neyðarskýlanna og bjóða viðtöl fyrir notendur. Markmið ráðgjafar í nýja neyðarskýlinu er að styðja notendur við að sækja þjónustu og stuðning innan félags- og heilbrigðiskerfisins. Ráðgjafar eru í samstarfi við heilbrigðiskerfið  í skimun fyrir smitsjúkdómum og meðferð notenda.