Nýtt leikskólahúsnæði við Kleppsveg verði hluti af Brákarborg  

Skóli og frístund

""

Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 heyri undir leikskólann Brákarborg sem er í næsta nágrenni. Með þeirri stækkun mun Brákarborg rúma 160 - 170 börn í tveimur húsum.

Á fundi sínum 26. janúar samþykkti skóla- og frístundaráð samhljóða að leita eftir umsögnum foreldraráðs og foreldrafélags Brákarborgar, starfsfólks og íbúaráðs Laugardals um að stækka Brákarborg með þessum hætti.

Borgin keypti viðbótahúsnæði við Kleppsveg 150-152 í nóvember sl. sem lið í aðgerðaráætlunina Brúum bilið en hún felur í sér fjölgun leikskólarýma í öllum borgarhlutum svo bjóða megi börnum allt frá 12 mánaða aldri vist í leikskólum borgarinnar.

Húsnæðið að Kleppsvegi 150-152 er í næsta nágrenni við Brákarborg sem stendur við Brákarsund en á milli húsanna eru 280 metrar í beinni loftlínu en 360 metra göngu- og akstursleið.

Leikskólinn Brákarborg er í einu elsta leikskólahúsnæði borgarinnar en hann tók til starfa 1952. Í leikskólanum geta nú verið 44 börn og því er Brákarborg einn fámennasti leikskóli borgarinnar. Árið 1995 var byggt við leikskólann en þó er starfseminni þröngur stakkur búinn, ekki síst þegar kemur að aðstöðu fyrir starfsfólk.

Upphaflega var stefnt að því í aðgerðaráætluninni Brúum bilið að fjölga leikskólarýmum um 700-750 á árunum 2019-2023 með byggingu nýrra leikskóla, viðbyggingum og/eða fjölgun leikskóladeilda við starfandi leikskóla, einkum þar sem eftirspurn eftir leikskólarýmum er mikil. Nú er verið að endurskoða þá áætlun og er stefnt að því að rýmum fjölgi talsvert meira á tímabilinu. Liður í því er að bæta við verkefnum sem fela í sér endurbætur á eignum borgarinnar svo þær megi hýsa nútímalegt leikskólastarf.