Nýr samningur Reykjavíkurborgar við sjálfstætt starfandi leikskóla í Reykjavík var í dag samþykktur í borgarráði. Samningurinn tekur gildi 1. janúar næstkomandi.
Allir leikskólar verða tengdir Völu
Þær breytingar sem foreldrar verða helst varir við er að með samningunum næst betri heildarsýn yfir alla leikskóla í Reykjavík. Þannig geta foreldrar til framtíðar litið séð á einum stað hvaða leikskólar eru í boði og í hvaða hverfum. Allir leikskólar verða tengdir kerfi sem kallast Vala leikskóli, þar sem hægt er að fylgjast með stöðu biðlista út frá kennitöluröð, í þeim leikskólum sem sótt hefur verið um í. Leikskólareikninn er tengdur Völu og því verða pláss í sjálfstætt starfandi leikskólum tekin með í reikninginn. Í Leikskólareikninum geta foreldrar skoðað áætlaða stöðu síns barns eða barna á biðlista í hverjum leikskóla út frá fyrsta vali eða óháð vali á leikskóla.
Reykvísk börn fá forgang
Í samningnum er kveðið á um að foreldrar reykvískra barna hafi forgang í sjálfstætt rekna skóla í borginni á tilteknu tímabili þegar verið er að innrita börn í leikskóla á komandi hausti. Á næstunni verða gerðir samningar við hvern og einn leikskóla sem meðal annars eru aðlagaðir að fjölda og aldri barna þar sem form sjálfstætt starfandi leikskóla eru mismunandi.
Hækkandi rekstrarkostnaði mætt
Í samningnum kemur fram að sjálfstætt starfandi leikskólar skuli byggja á Menntastefnu Reykjavíkurborgar og taka mið af Mannréttindastefnu borgarinnar. Gert er ráð fyrir að kostnaður borgarinnar vegna samningsins muni hækka um 290 milljónir króna árlega frá eldra líkani til að bæta stöðu sjálfstætt starfandi leikskóla vegna hækkandi rekstrarkostnaðar. Hækkuninni er meðal annars ætlað að mæta launakostnaði, fjölgun undirbúningstíma, afleysingum og hækkun hráefniskostnaðar.