Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í leikskólanum Hálsaskógi. Skóla- og frístundaráð afgreiddi ráðningu hennar á fundi sínum í dag.
Friðbjörg Eyrún lauk námi í leikskólakennarafræðum við HA á árinu 2006 og útskrifast með meistarapróf í stjórnun menntastofnana frá HÍ nú í vor. Hún hefur starfað sem leikskólakennari og deildarstjóri í leikskóla á Akranesi.
Sex umsækjendur voru um stöðuna.