Nýir stjórnendur hjá skólahljómsveitum Reykjavíkur

Skóli og frístund

""

Ingi Garðar Erlendsson hefur verið ráðinn stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðborgar og Björg Brjánsdóttir hefur verið ráðin stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar.

Ingi Garðar er sinni skólahljómsveit vel kunnugur en hann hefur kennt við sveitina og leyst af sem stjórnandi hennar síðastliðið ár. Ingi Garðar er básúnuleikari og tónlistarkennari með BA próf og MA próf í tónsmíðum og diplóma í hljóðfræði. Hann er tónskáld og hefur m.a. unnið útsetningar fyrir hljómsveitir.

Björg Brjánsdóttir er flautuleikari með BA próf frá Noregi og hefur stundað framhaldsnám í Þýskalandi. Hún  hefur kennarapróf í líkamsbeitingu hljóðfæraleikara. Björg hefur reynslu af kennslu barna og stjórnun hljómsveita. Hún hefur leikið með sinfóníuhljómsveitum hér heima og erlendis og stofnað til og tekið þátt í fjölda tónlistarverkefna og hópa. Hún hefur bæði samið og útsett tónlist.

Björg og Ingi Garðar eru boðin velkomin í hóp stjórnenda skólahljómsveit í Reykjavík og við óskum þeim velfarnaðar í starfi.