Ný selalaug og þjónustuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Framkvæmdir

Grunnmynd að nýrri selalaug og þjónustuhúsi dýra með innilaug.
Teikning af nýrri selalaug.

Ný selalaug mun margfalda það rúmmál sem selirnir hafa til sunds auk þess að gefa þeim möguleika á að kafa á meira dýpi. Borgarráð samþykkti í dag að fara í framkvæmdir við nýja selalaug og nýtt þjónustuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Framkvæmdirnar eru með aukna velferð dýra að leiðarljósi auk þess sem aðstaða fyrir fræðslustarf verður bætt.

Stórir gluggar og setbekkir

Þjónustuhúsið verður með nauðsynlegri inniaðstöðu til almennrar umhirðu og aðhlynningar dýra. Stórir gluggar neðan vatnsborðs á nýrri selalaug gefa gestum garðsins tækifæri til að sjá selina með nýjum hætti. Nýja selalaugin mun tengjast eldri laug. Setbekkir verða fyrir framan nýja laug og aðgengi fyrir alla verður tryggt.

Þessi viðbót mun stórauka getu garðsins til að sinna fræðslustarfi sínu auk þess að sinna betur dýrunum, þar á meðal móttöku villtra dýra í hremmingum í tengslum við Dýraþjónustu Reykjavíkur.

Til grundvallar nýrrar aðstöðu eru staðlar frá samtökum dýragarða í Evrópu (EAZE) um landseli (Phoca vitulina). Gert er ráð fyrir að eldri bygging (selabyrgi) verði nýtt fyrir lagnir, mælagrind og hreinsibúnað.

Helstu stærðir

  • Ný selalaug verður um 100 m2 og 300 m3 að stærð.
  • Mesta dýpt laugar verður um fjórir metrar.
  • Stærð þjónustuhúss verður um 37,6 m2 (birt flatarmál) með tæplega 11 m2 innilaug.

Framkvæmdatími og kostnaður

Áætlað er að framkvæmdirnar kosti 125 milljónir króna á verðlagi í apríl 2022. Samkvæmt frumáætlun um framkvæmdatíma má gera ráð fyrir að framkvæmdum við nýja selalaug, þjónustuhúsnæði og lóðarfrágang geti verið lokið í nóvember 2022.