Nagladekk ekki leyfileg eftir 15. apríl

Umhverfi Framkvæmdir

""

Hlutfall nagladekkja í Reykjavík minnkar árlega. Nagladekk eru ekki leyfileg á götum Reykjavíkurborgar eftir 15. apríl 2014. 

Hlutfall negldra dekkja var mælt í mars sl. og reyndust 28% ökutækja á negldum dekkjum og 72% á ónegldum. Það hefur því dregið nokkuð úr notkun nagladekkja miðað við talningu í mars 2013 en þá reyndust 35% bifreiða á negldum og 36% árið 2012.

Hlutfallið hefur lækkað verulega undanfarin ár en fyrir níu árum voru 58% bifreiða í Reykjavík á nöglum. Reykjavíkurborg telur nagladekk óþörf enda eyða þau götum margfalt hraðar en önnur dekk og eiga hlut í svifyks- og hávaðamengun. Góð vetrarþjónusta gatna og betri almenningssamgöngur hafa einnig hjálpað til við að draga úr notkun slíkra dekkja í borginni.

Nagladekk eru ekki leyfileg á götum Reykjavíkurborgar eftir 15. apríl 2014.

Niðurstöður talninga.