No translated content text
Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna fyrir grunnskólastarf í samræmi við stefnu um skóla án aðgreiningar. Stofnað var til verðlaunanna í minningu Arthurs Morthens.
Í skóla án aðgreiningar einkennist starfið af fjölbreytni og viðurkenningu á mismunandi þörfum nemenda, þar sem allir nemendur taka virkan þátt í skólastarfinu og margbreytileikinn er sýnilegur og virtur.
Arthur Morthens, sem lést árið 2016, helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var jafnframt talsmaður þeirra í réttindabaráttu sem oft á tíðum var erfið. Hann horfði alltaf á styrkleika barna fremur en veikleika og barðist fyrir því að öll börn hefðu sömu tækifæri til náms. Hann vann ötullega gegn einangrun barna með sérþarfir og stóð í fylkingarbrjósti í stefnumótun fyrir mannréttindum þeim til handa í skóla án aðgreiningar.
Verðlaunin verða veitt árlega næstu fimm árin, einum grunnskóla í Reykjavík.
Skilafrestur tilnefninga er til 31. janúar 2017. Allir geta sent inn tilnefningar á: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið sfs@reykjavik.is
Meira um verðlaunin.