Miðnæturhlaup Suzuki verður í kvöld fimmtudaginn 20. júní 2019. Hlaupið hefst á Engjavegi og endar á göngustíg við þvottalaugarnar í Laugardal. Lokað verður fyrir bílaumferð á nokkrum götum vegna hlaupsins og eru flestar lokanir eftir kl. 20.45. Sjá lista neðar á síðunni. Strætó mun gera ráðstafanir vegna götulokana tengdum hlaupinu.
Hlaupið hefst eins og áður segir á Engjavegi og endar á göngustíg við þvottalaugarnar í Laugardal. Boðið er upp á þrjár hlaupaleiðir; 5 km sem er hringur í Laugardal, 10 km sem fer frá Laugardal upp að stíflu í Elliðaárdal og til baka og 21 km leið sem er sama leið og 10 km í upphafi, framhjá stíflunni og eins og leið liggur upp dalinn, meðfram Rauðavatni, yfir golfvöll GR, niður Grafarvog að Elliðaárdal og þaðan í átt að Laugardal. Öll hlaupin sameinast um endamark á Þvottalaugavegi við Grasagarðinn.
Eftirfarandi götulokanir verða fyrir bílaumferð þann 20. júní 2019:
- Miðbik Engjavegar við Laugardalshöll frá kl. 17:00 – 22:00
- Engjavegur lokaður frá kl. 20:45 – 21:30
- Álfheimar milli Gnoðarvogs og Suðurlandsbrautar 20:50 – 23:50
- Ljósheimar milli Álfheima og Gnoðarvogs 20:50 – 21:30
- Gnoðarvogur við Engjaveg 20:50 – 21:30
- Skeiðarvogur milli Sólheima og Sogavegar 20:50 – 21:50
- Skeiðarvogur milli Sólheima og Suðurlandsbrautar 20:50 – 23:50
- Borgargerði við Sogaveg 20:50 – 21:50
- Bústaðavegur milli Reykjanesbrautar og Stjörnugrófar 20:50 – 21:50
- Sogavegur frá Skeiðarvogi að Bústaðavegi 20:50 – 21:50
- Reykjavegur frá kl. 21:10 – 21:45
- Suðurlandsbraut við Landholtsveg 21:00 – 23:55
Truflun á umferð mun eiga sér stað:
- Skeiðarvog og Álfheima við Suðurlandsbraut frá kl. 21:20 – 23:00
- Tunguvegur við Sogaveg 20:50 – 21:50
- Byggðarendi við Sogaveg 20:50 – 21:50
- Austurgerði við Sogaveg 20:50 – 21:50
Nánari upplýsingar
Myndir eru birtar með leyfi ÍBR.