Menningarnótt gekk vel fyrir sig

Mannlíf Mannréttindi

""

Talið er að vel á annað hundrað þúsund manns hafi skemmt sér í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt í afar fallegu veðri en borgin er í fullum sumarskrúða þessa dagana. Yfir 300 viðburðir voru í boði á afmælisdegi Reykjavíkurborgar sem stóð yfir í allan dag og var að ljúka rétt í þessu með glæsilegri flugeldasýningu. Mannfjöldinn dreifði sér vel í miðbæ Reykjavíkur og var mikil þátttaka í öllu viðburðarhaldi.

Að sögn lögreglu gekk hátíðin afar vel fyrir sig og aðsókn var jöfn og þétt frá hádegi allt fram á kvöld líkt og fyrri ár, en aldrei hafa fleiri gestir sótt hátíðina að sögn lögreglu.

Þá gekk umferð greiðlega frá miðborginni strax eftir flugeldasýninguna og gestir nýttu mjög vel þjónustu strætó til að komast til og frá miðborginni.

Stemningin var góð í allan dag og greinilegt að fólk hafi kunnað vel að meta að geta gengið um götur miðborgarinnar á þessum degi án þess að þurfa að hafa áhyggjur af bílaumferð.

Reykjavíkurborg þakkar gestum hátíðarinnar, viðburðahöldurum, rekstaraðilum, íbúum í miðborginni, lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, öryggisaðilum og Strætó innilega fyrir einstaklega vel heppnaða Menningarnótt. Mörg hundruð manns lögðu hönd á plóg til að gera hátíðina sem glæsilegasta og það tókst svo sannarlega.