Menningarnótt eftir nótt

Menning og listir

""

Í ár verður Menningarnótt með breyttu sniði til þess að stefna ekki of miklum mannfjölda saman í samræmi við tilmæli almannavarna vegna Covid-19 ástandsins. Hátíðin dreifist því yfir 10 daga og fer fram dagana 13.-23. ágúst.

Borgarbúar geta því notið hátíðarinnar dag eftir dag, nótt eftir nótt.

Nú er auglýst eftir frumlegum hugmyndum til að fylla inn í nýstárlegt viðburðalandslag Menningarnætur 2020.

Veittir verða styrkir á bilinu 100.000-500.000 krónur. Listafólk, íbúar, rekstraraðilar, félagasamtök og allir áhugasamir geta sótt um styrki. Allt er þetta gert til að lífga upp á miðborgina í nafni menningarnætur, þessari þátttökuhátíð sem borgarbúar skapa og upplifa saman.

Ert þú með góða hugmynd að atriði? Komdu í pottinn!

Hægt er að sækja um í Menningarnæturpottinn til 3. júlí næstkomandi.

Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem verið hefur máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.

Í ár verður tækifæri til að gleðjast saman, nótt eftir nótt því borgin mun lifna við í samvinnu við listafólk og hönnuði, plötusnúða og tónlistarfólk, leikhúsfólk og sirkuslistamenn og rithöfunda svo ekki sé minnst á gesti og gangandi.

Allt um menningarnótt