Veitur ohf. munu vinna að viðgerð í skólpdælustöðinni Faxaskjóli dagana 20. nóvember – 27. nóvember.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun því vakta strandlengjuna við og í nágrenni Faxaskjóls oftar en ella meðan á viðgerð stendur skv. áætlunog niðurstöður mælinga eru birtar á vef Heilbrigðiseftirlitsins eftir því sem þær berast.
Heilbrigðiseftirlitið bendir á að dæling skólps í sjó við Faxaskjól og viðvaranir um að fara ekki í sjóinn þar hefur ekki áhrif á skipulagt útivistarvæði og sjósundstað við Nauthólsvík vegna fjarlægðar og sjávarstrauma. Hér má sjá afstöðumynd af svæðinu .
Heilbrigðiseftirlitið bendir einnig á að strandlengjan við Reykjavík er vöktuð reglubundið og ástand sjávar mælist gott. Hins vegar er strandlengjan ekki almennur baðstaður skv. skilgreiningu nema þar sem slíkt er skipulagt sérstaklega eins og á Kjalarnesi og í Nauthólsvík.
Hægt er að kynna sér vöktunina og allar niðurstöður mælinga allt frá árinu 2003.