Í ágúst verða á Vitatorgi nokkrir viðburðir til að draga fólk að umfram það sem gerist á venjulegum dögum. Verkefnið er hluti af „Torg í biðstöðu“, sem ætlað er að gæða almenningsrými auknu lífi og koma með hugmyndir um nýtingu þeirra.
- Laugardaginn 9. ágúst frá kl. 17 – 20 verður Borg dj-set með upphitun fyrir Gay Pride partý kvöldsins. Skoða viðburð á Facebook.
- Miðvikudaginn 13. ágúst er boðið upp á pop-up yoga.
- Laugardaginn 16. ágúst verður flóa- og fatamarkaður. Þeir sem vilja taka þátt og falbjóða varning eru beðnir að senda skeyti á vitatorg2014@gmail.com
- Sunnudaginnn 17. ágúst er viðburðurinn „restaurant day reykjavik“ en þá opnar veitingastaður í einn dag á torginu.
- Laugardaginn 23. ágúst verður boðið upp á tónleika, dans, hljóðgjörning og matarmarkað.