No translated content text
Á málþingi fyrir borgarbúa um loftgæði í borginni munu sérfræðingar ræða áhrif loftmengunar og aðgerðir til að draga úr henni í borginni. Málþingið er haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal, miðvikudaginn 15. maí og hefst klukkan 9 og stendur til 10:30.
Dagskrá málþings
• Þröstur Þorsteinsson prófessor hjá HÍ: Umferðarmengun og heilsa.
• Hrund Ólöf Andradóttir prófessor hjá HÍ: Áhrifasvæði loftmengunar vegna útblásturs bifreiða.
• Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá UST: Gatnaslit, uppþyrlun vegryks og mótvægisaðgerðir.
• Svava S. Steinarsdóttir verkefnastjóri hjá HER: Loftgæðin í Reykjavík - aðgerðir og leiðir til lausna.