Lýðræði og tjáningarfrelsi
Opinn fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 11. desember klukkan 11.30 til 13.00.
Umræðuefnið er lýðræði og tjáningarfrelsi og eru þrír gestir sem verða með erindi á fundinum.
Magnús Davíð Norðdahl, formaður mannréttinda og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar er fundarstjóri.
Dagskrá:
11.30 Setning fundar
Magnús Davíð Norðdahl, formaður mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar
11.35 Mörk tjáningarfrelsis. Má ekkert lengur?
Dr. María Rún Bjarnadóttir, forstöðumaður Menntaseturs lögreglu.
11.50 Þverhausar og þversagnir: Er skautun umræðunnar óhjákvæmileg afleiðing umburðarlyndis?
Dr. Henry Alexander Henrysson, rannsóknarsérfræðingur á Siðfræðistofnun Háskóla Íslands
12.10 Mörk og markaleysi í umræðu - í fámennu samfélagi
Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður
12.25 Umræður og fyrirspurnir
Léttur hádegisverður í boði!
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir