Ljósadalurinn í Fjölskyldugarðinum - ókeypis á kvöldopnunum í desember

Jóladalurinn ljósum prýddur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Jóladalurinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Hverfið Mitt býður ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á kvöldopnunum í desember.

Verkefnið Jólaland í Laugardalnum var kosið í hverfakosningum í ár og því býður „Hverfið Mitt“ öllum að heimsækja jólaljósaskreyttan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgar frá kl. 17 – 20 föstudaga til sunnudaga frá 1. desember til jóla.

Hefðbundinn opnunartími er alla daga frá kl. 10 til 17 og þá gildir aðgangseyrir skv. gjaldskrá. 

Jólaljós hafa verið sett upp um allt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum svo nú er ævintýri líkast að ganga um garðinn í rökkrinu, heimsækja dýrin og þau sem þora geta heimsótt sjálfan jólaköttinn í desember. 

Á kvöldopnunum verður hringekjan í gangi, opið verður í veitingasölunni þar sem hægt verður að skreyta piparkökur og ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Ratleikirnir verða aðgengilegir í gegnum smáforritið Húsdýragarður – viskuslóð sem finna má i snjallverslunum snjalltækja. Hundaeigendum sem hafa skráð sína hunda hjá sínu sveitarfélagi er boðið að taka besta vininn með í kvöldheimsókn.

Sjá nánar viðburð Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á Facebook