Leitað eftir tilnefningum til loftslagsviðurkenningar

Umhverfi

""

Tilnefningar óskast til loftslagsviðurkenningar Reykjavíkurborgar og Festu fyrir árið 2021. Hægt er að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir eða einstaklinga. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 27. október en viðurkenningin verður veitt á loftslagsfundi þann 19. nóvember næstkomandi.

Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á því sem vel er gert í loftslagsmálum og vera hvatning. Tilnefningarnar geta verið frá aðilunum sjálfum eða öðrum.

Tillögur skal merkja „Loftslagsviðurkenning 2021“ og senda á netfangið usk@reykjavik.is eða með pósti til Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.

Óskað er eftir rökstuðningi með tilnefningunni en nánari upplýsingar má finna á þessu eyðublaði sem hægt er að styðjast við.

Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2017 en Landspítali hlaut viðurkenninguna á síðasta ári auk þess sem Carbfix fékk sérstaka nýsköpunarviðurkenningu.

Ítarupplýsingar

Vefur verkefnisins hjá Reykjavíkurborg.

Um fundinn og skráningu.