Leikskólinn Blásalir fagnar 20 ára afmæli

Skóli og frístund

""

20 ár eru í dag líðin síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri, klippti á borða og opnaði leikskólann Blásali í Árbænum.  

Glaðst var yfir þessum tímamótum í leikskólanum og bjuggu börnin til Blásalakórónur og skreyttu af miklu listfengi. Þá var sungið og boðið upp á afmælisköku í nónhressingunni. Til hamingju Blásalir!