Launamunur kynja vart mælanlegur hjá Reykjavíkurborg

Fjármál Stjórnsýsla

Þróun leiðrétts kynbundins launamunar hjá Reykjavíkurborg.
Þróun leiðrétts kynbundins launamunar hjá Reykjavíkurborg, línurit

Óleiðréttur launamunur karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg er 0,4% þegar litið er á heildarlaun alls starfsfólks að teknu tilliti til starfshlutfalls. Leiðréttur launamunur karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg mælist aðeins 0,1% þegar tekið hefur verið tillit til starfshlutfalls og annarra skýribreyta. Þetta kemur fram í nýrri greiningu á kynbundnum launamun hjá borginni fyrir árið 2023. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaðurinn á opinberum vinnumarkaði hér á landi og hefur með markvissum aðgerðum náð markverðum árangri í átt að launajafnrétti.

Reykjavíkurborg hlaut jafnlaunavottun árið 2019 og fékk endurnýjaða vottun árið 2022. Jafnlaunavottunin er þess eðlis að til að vinnustaðurinn haldi vottuninni þarf hann að sýna fram á áframhaldandi árangur milli ára. Endurúttekt á jafnlaunakerfi Reykjavíkurborgar hefur staðfest að jafnlaunakerfi borgarinnar uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru í jafnlaunastaðli. Ein af kröfum staðalsins er að gerð sé greining á launum starfsfólks sem felst í kerfisbundinni úttekt á launum og kjörum í þeim tilgangi að kanna hvort kynbundinn launamunur sé til staðar. Þá þarf skipulagsheildin að móta sér jafnlaunastefnu, velja sér jafnlaunaviðmið og skilgreina, flokka og meta virði starfa þannig að saman flokkist sömu eða jafnverðmæt störf. Aðaláherslan er á að greiða skuli sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Mun minni launamunur en á almennum vinnumarkaði

Launagreiningin, sem náði til alls starfsfólks Reykjavíkurborgar sem var í starfi í október árið 2023, sýnir að konur voru með 0,1% lægri heildarlaun en karlar þegar litið er á laun alls starfsfólks borgarinnar að teknu tilliti til starfshlutfalls, aldurs, reynslu, menntunar, starfaflokks, yfirvinnu, hæfnisflokka, annarra launa og vaktaálags. Meðalmunur á heildarlaunum allra karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg þegar aðeins er tekið tillit til starfshlutfalls, er 0,4%, körlum í vil. Konur eru að meðaltali með 6,9% hærri uppreiknuð grunnlaun en karlar þegar aðeins hefur verið tekið tillit til starfshlutfalls en 0,3% hærri heildarlaun þegar tekið er tillit til stýribreyta. Þegar greiningin var gerð voru alls 10.162 starfsmenn á launaskrá hjá Reykjavíkurborg, þar af 7.394 konur eða 72,8%, 2.757 karlar eða 27,1% og 11 kynsegin, eða 0,1%.

Reykjavíkurborg hefur í gegnum árin lagt mikla áherslu á jafnrétti. Markvisst hefur verið unnið að því að útrýma kynbundnum launamun og hefur mikill árangur náðst í þeirri vinnu síðastliðna þrjá áratugi. Samkvæmt launarannsókn Hagstofunnar var leiðréttur launamunur kynjanna árið 2020 5,6% á almennum vinnumarkaði. Hjá Reykjavíkurborg var leiðréttur launamunur 0,9% (körlum í vil) það sama ár. Ári síðar mældist leiðréttur launamunur 0,4% (körlum í vil) hjá Reykjavíkurborg.

Mikilvægt að fylgja árangrinum eftir

Markvissar aðgerðir til að vinna að launajafnrétti, svo sem innra og ytra eftirlit, rýni stjórnenda og stöðugar umbætur, leiða til þess að stöðugt er verið að bæta einstaka þætti jafnlaunakerfis borgarinnar. Þótt Reykjavíkurborg hafi náð þeim árangri að launamunur kynjanna mælist nú varla er enn sem fyrr mikilvægt að rýna kerfið og fylgja árangrinum eftir. Meðal aðgerða framundan er úttekt og endurskoðun á starfsmatskerfi í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, hlutaðeigandi stéttarfélög og Jafnlaunastofu.

„Að nota starfsmatskerfi til að meta virði starfa hefur klárlega sannað sig sem leið til að ná fram launajafnrétti,“ segir Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar. „Þannig byggja launaákvarðanir starfsfólks á sömu viðmiðum.“

Greining á kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg 2023.