Lag Barnamenningarhátíðar 2023 fjallar um frið

Vigdís Hafliðadóttir tónlistarkona og listamaður syngur lag Barnamenningarhátíðar 2023

Lag Barnamenningarhátíðar 2023 mun fjalla um frið og verður samið af Vigdísi Hafliðadóttur og Ragnhildi Veigarsdóttur í hljómsveitinni FLOTT. Allir 4. bekkir í grunnskólum Reykjavíkur hafa fengið það verkefni að svara spurningum um frið, allt frá innri friði hvers og eins til heimsfriðar.

Texti lagsins verður byggður á svörum barnanna og verður frumflutt af þeim og Vigdísi á opnunarhátíð Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu þann 18. apríl næstkomandi.

Lag Barnamenningarhátíðar hefur verið samið í samstarfi tónlistarfólks og nemenda í 4. bekk grunnskóla frá árinu 2015. Meðal tónlistarfólks sem hefur lagt verkefninu lið eru Salka Sól, Reykjavíkurdætur, Jón Jónsson, Daði Freyr, Bríet og JóiPé og Króli.

Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 18. – 23. apríl næstkomandi. Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna, með börnum og fyrir börn.

Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir viðburðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Frítt er inn á alla viðburði.