Kynningarfundur á vinnslutillögu deiliskipulags fyrir hluta Kringlusvæðis

Kringlureitur

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði í Ásbergssalnum í Kringlubíói, þriðjudaginn 14. maí kl. 17. Á sama tíma verður opnuð sýning  á þessum drögum að deiliskipulagstillögu fyrir almenning á jarðhæð í göngugötu Kringlunnar.  

Um er að ræða drög að deiliskipulagstillögu 1. áfanga Kringlusvæðis, sem nær til lóðanna Kringlan 1-3 og Kringlan 5. Höfundar eru danska teiknistofan Henning Larsen ásamt THG arkitektum og er tillagan gerð fyrir Reiti fasteignafélag. 

Á fundinum verður farið stuttlega yfir aðdraganda deiliskipulagsgerðar og deiliskipulagslýsingar fyrir áfanga 1-3, en að því loknu munu höfundar fara yfir drög að deiliskipulagstillögu sinni og jafnframt gera grein fyrir þeirri vinnu sem að baki liggur. 

Fundurinn er öllum opinn og munu Reitir opna fyrir umræður og spurningar varðandi deiliskipulagstillöguna sem er í undirbúningi. 

Að auki verður deiliskipulagslýsing 1.-3. áfanga Kringlunnar aðgengileg 14. maí í skipulagsgátt þar sem senda má inn ábendingar á slóð Skipulagsstofnunar.  

Margbreytileiki með útirýmum

Á Kringlusvæðinu verða fjölbreytt húsform og ný skjólgóð og sólrík götu- og torgrými, samtvinnuð stærri útirýmum. Umferð akandi, hjólandi og gangandi er gert jafnhátt undir höfði með sérstakri áherslu á gönguvænt umhverfi. Meginmarkmið tillögunnar er að móta nýtt og þétt borgarumhverfi þar sem margbreytileikinn fær notið sín.  

Reitir og Reykjavíkurborg