Kvennahlaup ÍSÍ 2013

Íþróttir og útivist

""

Kvennahlaup á vegum félagsstarfsins í Gerðubergi fer fram miðvikudaginn 5. júní. Upphitun hefst kl. 12.30 og kl. 13.00 ræsir Lárus Rögnvaldur Haraldsson, formaður hverfisráðs, hlaupið.

Karlmenn, þátttakendur í Félagsstarfinu í Gerðubergi, afhenda viðurkenningarpeninga. Skráningargjald er kr. 1.500, innifalið bolur og peningur. Skráning á staðnum og s. 575 7720.