Kiðlingar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Umhverfi Skóli og frístund

""

Huðnur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru byrjaðar að boða vorið þó veðurfræðingar séu ekki endilega sammála.

Elstu huðnurnar Ronja, Frigg og Garún hafa nú borið samtals 5 kiðlingum og eins og fyrri ár er krúttfaktorinn í hámarki í fjárhúsunum. Hafurinn Djarfur fylgist með í fjarlægð en hann er faðir allra kiðlinganna sem von er á í garðinum þetta vorið.

Myndirnar sem fylgja eru af huðnunni Frigg og kiðlingunum hennar.