Jólavættir Reykjavíkurborgar komnar á stjá

Jólavættirnar 13

Jólavættaleikur Reykjavíkurborgar er hafinn og venju samkvæmt eru 13 jólavættir búnar að koma sér fyrir hér og þar um borgina.

Ratleikurinn er snjallvæddur og auðvelt er að nálgast hann á síðunni jolavaettir.borginokkar.is.

Jólavættaleiknum er ætlað að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að njóta miðborgarinnar á aðventunni. Jafnframt því er verið að upphefja íslenska sagnahefð og tengja íbúa borgarinnar við gesti hennar í gegnum samtöl og sögur. Gunnar Karlsson myndlistarmaður teiknaði vættirnar sem hafa lífgað upp á miðborgina á aðventunni frá árinu 2011.

Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og Þórálfur verða búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víða í miðbænum í desember og úr verður skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Þátttakan felst í því að leita uppi vættirnar og svara laufléttum spurningum.

Dregið verður úr svarseðlum 20. desember og vegleg verðlaun í boði fyrir þrjá heppna þátttakendur sem eru með öll svör rétt. 

Leikurinn er inn á jolavaettir.borginokkar.is og þar getur þú tekið þátt í þessum skemmtilega jólaratleik.

Gangi ykkur vel og góða skemmtun!