Jólaljósin tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli

Oslóartréð á Austurvelli

Jólaljósin á Oslóartrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli á fyrsta sunnudegi í aðventu þann 3. desember klukkan 16.00.

Tendrun jólaljósanna á Oslóartrénu markar upphaf jólahátíðarinnar í hugum og hjörtum borgarbúa. Jólatréð er gjöf frá íbúum Oslóar og var fellt í Heiðmörk fyrr í vikunni. Tréð er er skreytt með 6800 ljósum, 120 gylltum jólakúlum og á toppnum er fallega jólastjarnan.

Dagskrá:

Tufti og tröllabörnin mæta á Austurvöll til að gleðja gesti og gangandi.

Lúðrasveit Reykjavíkur leikur aðventu- og jólalög frá kl 15:30.

Salka Sól og Snorri Helgason ásamt hljómsveit munu flytja falleg jólalög.

Abdullah Alsabeehg borgarfulltrúi Oslóarborgar flytur kveðju frá Oslóarborg og afhendir Reykvíkingum þýddar bækur að gjöf og fá öll skólabókasöfn í Reykjavík einnig bækur að gjöf.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar flytur þakkarræðu og norsk-íslenski drengurinn Kristþór Viljar Dansson, 4 ára, mun aðstoða við að tendra ljósin á trénu.

Jólasveinarnir Bjúgnakrækir og Askasleikir stelast í bæinn til að syngja og skemmta kátum krökkum.

Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.

Öll velkomin!