Jólaborgin í jólaskapi

Jólaborgin Reykjavík. Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Jólaborgin Reykjavík

Reykjavík er komin í jólabúning og á aðventunni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í miðborginni og víðar.

Jólakötturinn er nú kominn á sinn stað og jólaljósin, um 200 þúsund perur og 20 kílómetrar af jólaseríum, prýða nú borgina. Oslóartréð, sem á sér fastan sess í hugum borgarbúa, lýsir upp Austurvöll og er ómissandi hluti af jólaborginni.

Viðburðapottur jólaborgarinnar

Fjölbreyttir viðburðir verða í boði á aðventunni sem munu gleðja gesti og gangandi. Úthlutað var 16 styrkjum úr viðburðapotti jólaborgarinnar til aðila sem verða með viðburði á aðventunni. Boðið verður upp á söng og tónlist, kórsöng og minni sönghópa, Harmonikkusystur og lúðrasveitir svo fátt eitt sé nefnt. Jólasveinarnir verða á vappi í miðborginni og tröllið Tufti bregður á leik alla sunnudaga fram að jólum. Boðið verður upp á flesta viðburði um helgar og svo síðustu dagana fyrir jól.

Jólavættaleikur

Jólavættaleikurinn hefst í dag, 6. desember og verða þá allar jólavættirnar búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víðs vegar um miðborgina. Leikurinn hefur notið vinsælda meðal gesta borgarinnar sem þurfa að þræða götur og torg í leitinni að jólavættunum og fylla inn á jolavaettir.borginokkar.is. Leikurinn stendur til 19. desember og verða vegleg verðlaun dregin út úr innsendum réttum svörum.

Jólaskógur

Jólaskógur Ráðhússins verður opnaður 6. desember. Tanja Levy og Jökull Jónsson upplifunarhönnuðir hafa umbreytt Tjarnarsalnum í ævintýralegan jólaskóg. Þar geta gestir og gangandi gengið um og komist í jólaskap enda grenilyktin allsráðandi í skrautlegu jólaumhverfi. Jólaskógurinn er opinn virka daga frá klukkan 8-18.00, á laugardögum frá klukkan 10–18 og á sunnudögum frá 12–18.

Stuð á skautum  

Stuðsvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi var opnað um liðna helgi. Á Stuðsvellinu mun jólaandinn ríkja á meðan gestir spreyta sig á skautum á svellinu og á milli skautaferða má gæða sér á heitu kakói og meðlæti í söluskálum. Stuðsvellið er opið alla daga frá klukkan 12-21 nema á jóladag og annan í jólum. Á gamlársdag er opið til klukkan 15.00 og á nýársdag er opið frá klukkan 12-21. Bóka má tíma heimasíðunni.

Jólamarkaðir

Jólamarkaðurinn Hjartatorgi verður á sínum stað og opinn allar helgar í desember og dagana 21-23 desember. Þar verður að finna fjölbreytt úrval söluaðila með smávörur og aðrar spennandi jólavörur. Þá verða matarvagnar á staðnum þar sem boðið er upp á gómsæta rétti. Ýmis  skemmtiatriði verða á Hjartatorgi og sannkölluð jólastemning.

Jólakvosin er jólamarkaður sem verður opnaður í hjarta Kvosarinnar við Stuðsvellið á Ingólfstorgi og stendur frá 2. til 23.des. Þar verða fjölbreyttir sölubásar með gómsætum kræsingum, sælgæti, jólaglöggi og vörum ásamt öðru skemmtilegu sem kemur öllum í gott jólaskap. Í Jólakvosinni verða síðan haldnir minni viðburðir sem auglýstir verða síðar á fésbókarsíðu jólamarkaðarins. Jólamarkaðurinn var opnaður föstudaginn 2. desember og verður opið fyrstu helgina frá 16-20 á föstudag og 12-20 á laugardag og sunnudag.

Jól á Borgarbókasafni

Jóladagskrá Borgarbókasafnsins er fjölbreytt og ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í aðdraganda jóla. Boðið verður upp á upplestur úr nýjum bókum, barnabókaball, ýmiss konar föndurstundir, samsöng og margt fleira. Jóladagatalið er á sínum stað þar sem opnaður verður einn kafli á dag og hægt að lesa eða hlusta á jólaævintýri. Nánar um jóladagskrá Borgarbókasafnsins.

Jólin á Árbæjarsafni

Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sunnudagana 10. og 17. desember. Þá daga gefst gestum tækifæri að njóta aðventunnar og upplifa jólin eins og þau voru í Reykjavík í þá gömlu góðu daga. Jólaundirbúningur er í fullum gangi í bænum og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá.  Í Árbæ má sjá heimafólk skera út laufabrauð, kemba ull og spinna garn. Í Hábæ bjóða húsbændur gestum að smakka íslenskt hangikjöt og í Nýlendu verður maður að tálga skemmtilegar fígúrur úr tré.

Jól í Heiðmörk

Jólamarkaðurinn í Elliðavatnsbæ sem Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til á hverju ári opnaði um liðna helgi og þar kennir ýmissa grasa. Þau sem vilja fella sitt eigið tré eru velkomnir á Hólmsheiðina þar sem jólaskógur skógræktarinnar verður opinn allar helgar fram að jólum. Íbúar miðborgarinnar geta svo farið og keypt sér jólatré í gróðurhúsið á Lækjartorgi en þar verður jólatrjáasala Skógræktarfélags Reykjavíkur  dagana 15. – 22. desember. Nánar um dagskrána á Heiðmörk.is

Litlu jólin í Elliðaárdal

Dagana 6. – 8. desember verða litlu jólin í Elliðaárstöð. Dyrnar að gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal frá verða opnar frá kl.12 til 16 og gestir og gangandi fá að kíkja inn í þessa sögufrægu byggingu og anda að sér ilm jólanna. Jóla pop-up búð verður inn á verkstæði rafstöðvarinnar, þar sem ný vörulína Elliðaárstöðvar verður til sölu og sýnis.Húsin á svæðinu verða skreytt fallegum jólaljósum og kaffihúsið Á Bístró mun bjóða upp á sérstakan jólamatseðil. Sjá dagskrá Litlu jólin í Elliðaárdal
 

Allar upplýsingar um dagskrá jólaborgarinnar má nálgast á jólaborgin.is

Öll velkomin í Jólaborgina!