Íþróttavika Evrópu hefst á morgun

Árbæjarlaug

 Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin á hverju ári frá 23.–30. september í yfir 30 Evrópulöndum.

Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði um land allt. 

Í Reykjavík verður boðið upp á viðburði í öllum hverfum, má þar nefna Sjóbaðs og Zumba partý sem verður haldið á Ylströndinni í Nauthólsvík á morgun laugardaginn 23. september klukkan 13:00. Glaðari þú - sjóbaðsleikjanámskeið og Dans og Jóga ætla að sameinast og halda eitt gott partý á fyrsta degi íþróttaviku. Öll áhugasöm eru velkomin að koma og prufa sjóbað og dansa með okkur zumba. Mælt er með gestir komi með sundföt, vaðskó eða ullarsokka og gamla strigaskó ef þú ætlar að skreppa með okkur í sjóinn. Facebook viðburður

Boðið verður upp á flot, vatnsleikfimi, vatnadjamm og fleira í sundlaugum Reykjavíkur. Í öllum hverfum borgarinnar verður meðal annars boðið upp á leiðsögn í Frisbígolfi, stafgöngu, styrktarþjálfun, dansleikfimi, hressandi útiveru og ýmiskonar fræðslufyrirlestra. Dagskrána Íþróttaviku Evrópu má nálgast á beactive.is og á Facebooksíðu verkefnisins.

Íþróttavika Evrópu 2023