Íþróttafólk Reykjavíkur 2022
Tilkynnt var um hver hlyti titilinn íþróttakona og íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2022 og einnig var tilkynnt hvert íþróttalið Reykjavíkur væri fyrir árið 2022.
Andrea Kolbeinsdóttir íþróttakona Reykjavíkur
Íþróttakona Reykjavíkur 2022 er Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttakona í Íþróttafélagi Reykjavíkur. Andrea er sigursælasti hlaupari kvenna á Íslandi 2022. Andrea var í 21. sæti á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í Tælandi. Andrea náði einnig 2. sæti í sterku utanvegahlaupi í Wildstrubel í Sviss á árinu. Andrea hefur sýnt það á árinu að hún getur sigrað hlaup allt frá 5 km upp í 55 km. Andrea er Íslandsmeistari í maraþoni, en hún sigraði Reykjavíkurmaraþonið á öðrum besta tíma kvenna frá upphafi. Þá er hún Íslandsmeistari í 5 km, 10 km og 8 km Víðavangshlaupi. Andrea sigraði í Laugavegshlaupinu á nýju brautarmeti kvenna, ásamt því að sigra öll stærstu hlaupin hér á landi eins og Tindahlaupið, Fimmvörðuhálshlaupið, Súlur Vertical, Snæfellsjökulshlaupið og fleira.
Við óskum Andreu Kolbeinsdóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2022.
Íþróttakona Reykjavíkur 2022
Snorri Eyþór Einarsson Íþróttamaður Reykjavíkur
Snorri Eyþór Einarsson skíðagöngumaður í skíðagöngufélaginu Ulli er íþróttamaður Reykjavíkur. Hann náði besta árangri skíðagöngumanns á Íslandi frá upphafi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Á Ólympíuleikunum náði hann 23. sæti í 50 km skíðagöngu með frjálsri aðferð, 29. sæti í 30 km skiptiganga, 36. sæti í 15 km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð og varð í 19. sæti í liða sprettinum. Snorri varð einnig í 13. sæti á alþjóðlegu FIS móti í 15 km með frjálsri aðferð. Snorri er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu á árinu í 10 km göngu með frjálsri aðferð, 15 km með hefbundinni aðferð og í 1 km sprettgöngu. Þá sigraði Snorri einnig í 10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu.
Við óskum Snorra Eyþóri Einarssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2022.
Íþróttamaður Reykjavíkur 2022
Íþróttalið ársins er meistaraflokkur karla í handknattleik frá Val
Handknattleikslið Vals náði frábærum árangri 2022, þeir eru Íslands-, bikar-, og deildarmeistarar. Þá byrjar tímabilið þeirra vel hérlendis og þá hafa þeir einnig verið frábærir í Evróupkeppninni.
Við óskum handknattleiksliði Vals til hamingju með titilinn Íþróttalið Reykjavíkur 2022.