Íþróttafólk Reykjavíkur 2022

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Alexander Örn Júlíusson fyrirliði Vals, Andrea Kolbeinsdóttir frjálsíþróttakona, Snorri Eyþór Einarsson skíðagöngumaður og Ingvar Sverrisson formaður IBR.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Alexander Örn Júlíusson fyrirliði Vals, Andrea Kolbeinsdóttir frjálsíþróttakona, Snorri Eyþór Einarsson skíðagöngumaður og Ingvar Sverrisson formaður IBR.

Tilkynnt var um hver hlyti titilinn íþróttakona og íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2022 og einnig var tilkynnt hvert íþróttalið Reykjavíkur væri fyrir árið 2022.

Andrea Kolbeinsdóttir íþróttakona Reykjavíkur

Íþróttakona Reykjavíkur 2022 er Andrea Kolbeinsdóttir, frjálsíþróttakona í Íþróttafélagi Reykjavíkur. Andrea er sigursælasti hlaupari kvenna á Íslandi 2022. Andrea var í 21. sæti á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í Tælandi. Andrea náði einnig 2. sæti í sterku utanvegahlaupi í Wildstrubel í Sviss á árinu. Andrea hefur sýnt það á árinu að hún getur sigrað hlaup allt frá 5 km upp í 55 km. Andrea er  Íslandsmeistari í maraþoni, en hún sigraði Reykjavíkurmaraþonið á öðrum besta tíma kvenna frá upphafi. Þá er hún Íslandsmeistari í 5 km, 10 km og 8 km Víðavangshlaupi. Andrea sigraði í Laugavegshlaupinu á nýju brautarmeti kvenna, ásamt því að sigra öll stærstu hlaupin hér á landi eins og Tindahlaupið, Fimmvörðuhálshlaupið, Súlur Vertical, Snæfellsjökulshlaupið og fleira.

Við óskum Andreu Kolbeinsdóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2022.

Snorri Eyþór Einarsson Íþróttamaður Reykjavíkur

Snorri Eyþór Einarsson skíðagöngumaður í skíðagöngufélaginu Ulli er íþróttamaður Reykjavíkur. Hann náði besta árangri skíðagöngumanns á Íslandi frá upphafi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Á Ólympíuleikunum náði hann 23. sæti í 50 km skíðagöngu með frjálsri aðferð, 29. sæti í 30 km skiptiganga, 36. sæti í 15 km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð og varð í 19. sæti í liða sprettinum. Snorri varð einnig í 13. sæti á alþjóðlegu FIS móti í 15 km með frjálsri aðferð. Snorri er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu á árinu í 10 km göngu með frjálsri aðferð, 15 km með hefbundinni aðferð og í 1 km sprettgöngu. Þá sigraði Snorri einnig í 10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu.

Við óskum Snorra Eyþóri Einarssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2022.

Íþróttalið ársins er meistaraflokkur karla í handknattleik frá Val

Handknattleikslið Vals náði frábærum árangri 2022, þeir eru Íslands-, bikar-, og deildarmeistarar. Þá byrjar tímabilið þeirra vel hérlendis og þá hafa þeir einnig verið frábærir í Evróupkeppninni.

Við óskum handknattleiksliði Vals til hamingju með titilinn Íþróttalið Reykjavíkur 2022.