Innritun í grunnskóla og á frístundaheimili

Skóli og frístund

""

Á morgun, miðvikudaginn 20. febrúar kl. 8:20 hefst innritun fyrir börn í Reykjavík sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla og á frístundaheimili, haustið 2019.

Innritun stendur til 2. mars. Um 1550 reykvísk börn hefja grunnskólagöngu sína næsta haust en alls eru að jafnaði um 15.000 nemendur í grunnskólum Reykjavíkur.

Innritun fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík/Mínar síður

Nánari upplýsingar eru á Foreldravefnum undir liðnum Grunnskólar – frístundastarf