Innköllun á Sólgæti döðlum vegna skordýra

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Sólgæti döðlur vegna þess að skordýr hafa fundist í vörunni.
 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Sólgæti.
Vöruheiti: Döðlur.
Strikanúmer: 5024425287810.
Nettómagn: 500 g.
Best fyrir: 15.08.2019.
Lotunúmer: 7227.
Framleiðsluland: Bretland.
Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Nettó, Kjörbúðin Blönduósi, Seljakjör, verslanir Heilsuhússins, Fjarðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar og Pétursbúð.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670, heilsa@heilsa.is