No translated content text
Innköllun á SFC Boneless Bucket 650 g kjúklingabita
![""](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/myndir_frettir/frettamyndir_2014_febjuli/chicken.jpg?h=78b4c47f&itok=Ih1ULAEW)
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum SFC Boneless Bucket 650 g kjúklingabita.
Ástæða innköllunar:
Salmonella hefur greinst í vörunni.
Hver er hættan?
Salmonella getur valdið niðurgangi, kviðverkjum, ógleði, hita og uppköstum. Nánari upplýsingar á vef Matvælastofnunar.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: SFC
Vöruheiti: Take Home Boneless Bucket - Crunchy golden pieces of tasty, succulent Chicken Crispy Strips, Dippers and Poppets coated in a Southern Fried Style coating
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 28.11.2021
Lotunúmer: L19720
Strikamerki: 5031532020629
Nettómagn: 650 g
Geymsluskilyrði: Frystivara
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
Dreifing:
Verslanir Hagkaupa um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda:
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori[hja]adfong.is.