Innköllun á hveiti frá Red Lotus

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

Hveitipoki frá Red Lotus

Dai Phat Trading ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Special Flour frá Red Lotus.

Ástæða innköllunar:

Varan er innkölluð vegna óleyfilegs aukefnis

Hver er hættan?

Engin hætta tilgreind.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Red Lotus

Vöruheiti: Special Flour

Strikamerki: 8850310000731

Nettómagn: 1 kg

Framleiðandi: United Flour Mill Public Co., Ltd.

Framleiðsluland: Taíland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Dai Phat Trading ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík

Dreifing:

Dai Phat Supermarket, Faxafeni 14

Leiðbeiningar til neytenda:

Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Fyrir fleiri upplýsingar hafið samband í númerið 765-2555.