Innköllun á bókhveiti-, hirsi- og kínóavörum

Heilbrigðiseftirlit

""

Vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (mjólkurduft og sojaprótein) hefur fyrirtækið Bændur í bæum í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vörur. 

Bændur í bænum hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði vörur vegna þess að þær innihalda ómerkta ofnæmis- og óþolsvalda (mjólkurduft og sojaprótein).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti: Boveteflingor, hirsflingor, quinoaflingor, quinoamjöl
Strikanúmer: 731773152005, 7317731521104, 7317731520305, 7317731521104, 7317731521401, 7317731520305 og 7317731521906.
Nettómagn: 250 g og 300 g
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
Framleiðandi: Saltå Kvarn
Framleiðsluland: Svíþjóð
Dreifing: Bændur í bænum Grensásvegi 10 og netverslun Bændur í Bænum.

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir mjólkurdufti og sojapróteini.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir mjólkurdufti eða sojapróteini eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til Bændur í bænum, Grensásvegi 10 á milli 11:00 – 18:15 virka daga.