Innköllun á Amisa Organic Lactose Free Rice Milk Chocolate Rice Cakes

Innkallanir matvæla

""

Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Amisa Organic Lactose Free Rice Milk Chocolate Rice Cakes vegna ómerkts ofnæmis- eða óþolsvalds (mjólk).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Amisa.
Vöruheiti: Organic Lactose Free Rice Milk Chocolate Rice Cakes.
Strikanúmer: 5032722312814.
Best fyrir: 15.11.2019.
Nettómagn: 100 g.
Framleiðandi: Windmill Organics, Bretlandi.
Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Heilsuhússins, Nettó og Melabúðarinnar.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi) eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- eða óþolsvaldar að koma skýrt fram á umbúðum matvæla.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi- eða óþol fyrir mjólk og mjólkurafurðum eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt.  Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670.