Innkalla Shin Red Super Spicy núðlur

Innkallanir matvæla

Shin Red Super Spicy núðlur.

Market Hong Phat hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Shin Red Super Spicy Noodles.

Ástæða innköllunar er að varnarefnið Iprodione greindist yfir leyfilegum mörkum í vörunni en það er flokkað sem krabbameinsvaldandi efni og getur því valdið heilsuskaða ef þess er neytt í miklu magni.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Nongshim
  • Vöruheiti: Shin Red Super Spicy Noodles
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 15.09.2022
  • Strikamerki: 8801043053167
  • Nettómagn: 120 g
  • Framleiðandi: Nongshim Co., Ltd.
  • Framleiðsluland: Suður-Kórea
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
  • Market Hong Phat ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.

Um dreifingu vörunnar sér Market Hong Phat, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Market Hong Phat, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má nálgast í verslun Market Hong Phat, Suðurlandsbraut 8 eða í tölvupósti: markethongphat@gmail.com.