Innkalla Santa Maria Tortilla flögur

Innkallanir matvæla

Poki af Santa María tortilla chips, salted flögum.

Aðföng hafa að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Santa Maria Organic Crispy Corn Tortilla Chips Salted.

Ástæða innköllunar er aðskotaefni, svokölluð trópanbeiskjuefni (atrópín og skópalamín), hafa greinst yfir mörkum, sem skilgreind eru í reglugerð. Matvæli sem innihalda magn aðskotaefna yfir mörkum eru ekki örugg til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Santa Maria Organic
  • Vöruheiti: Crispy Corn Tortilla Chips Salted
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
  • Nettómagn: 125 g
  • Strikamerki: 7311310032067
  • Framleiðandi: Framleitt fyrir Paulig-Santa Maria AB í Svíþjóð
  • Framleiðsluland: Belgía

Það eru Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík, sem innkalla vöruna en um dreifingu sjá verslanir Hagkaupa.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til verslunarinnar þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í tölvupósti, gaedastjori[hja]adfong.is.