Innkalla núðlusúpur

Pancit Canton núðlur.

Að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur Filipino Store og Dai Phat Trading Inc ehf. , stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton og Beef Mami Instant Noodle Soup frá Lucky Me!

Ástæða innköllunar er að varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á innihaldsefnum sem síðan voru notuð við framleiðslu á vörunni. Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.

Ethylene oxíð er hættulegt efni og þó það hafi ekki bráða eiturvirkni hefur efnið erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Lucky Me!
  • Vöruheiti: Instant Noodles Pancit Canton (Original Flavor, Chilli, Calamansi, Chillimansi), og Beef Mami Instant Noodle Soup
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar lotur/dagsetningar
  • Nettómagn: 60 g og 55 g
  • Framleiðandi: Monde Nissin Thailand Co. LTD.
  • Framleiðsluland: Tæland

Heiti og heimilisfang fyrirtækja sem innkallar vöru: Filipino Store, Langarima 21-23, 112 Reykjavík og Dai Phat Trading, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Vörurnar eru í dreifingu í verslun Filipino Store, Langarima 21-23, 112 Reykjavík, vefverslun fyrirtækisins, www.filipino.is og Dai Phat Trading, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslanir Filipino Store, Langarima 21-23, 112 Reykjavík og  Dai Phat Trading, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má nálgast í verslunum Filipino Store, Langarima 21-23, í síma 662 5369 eða í tölvupósti: store@filipino.is og Dai Phat Trading, Faxafeni 14, sími 578 3889